Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí


Sveitarstjórnarkosningar í Dalvíkurbyggð
29. maí 2010

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 29. maí n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá 19. maí n.k. fram á kjördag í þjónustuveri bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá í þjónustuveri bæjarskrifstofu á opnunartíma fram á kjördag.


Athygli er einnig vakin á atkvæðagreiðslu utan kjörfundar sem fer fram í útibúi sýslumannsins, Gunnarsbraut 6 á Dalvík.


Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar er að finna á kosningavef Dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, www.kosning.is .


F.h. Dalvíkurbyggðar
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
starfandi fjármála- og stjórnsýslustjóri