Kjörskrá vegna forsetakosninga

Kjörskrá vegna kjörs forseta Íslands í Dalvíkurbyggð 30. júní 2012 liggur frammi almenningi til sýnis, frá 20. júní n.k. fram á kjördag, í þjónustuveri bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá í þjónustuveri bæjarskrifstofu á venjulegum opnunartíma fram á kjördag.

F.h. bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar


Svanfríður Inga Jónasdóttir
bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð