Kjörskrá

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengt, 20. október 2012, liggur frammi almenningi til sýnis frá 10. október n.k. fram á kjördag í þjónustuveri bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.


Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.


Kjörskrá miðast við skráð lögheimili í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, eða 29. september 2012.
Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá í þjónustuveri bæjarskrifstofu á venjulegum opnunartíma fram á kjördag.


F.h. bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar
Svanfríður Inga Jónasdóttir
bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð