Kennsla í fisktækni í Menntaskólanum á Tröllaskaga hefst haustið 2012

Kennsla í fisktækni í Menntaskólanum á Tröllaskaga hefst haustið 2012. Áhersla verður lögð á íslenskan sjávarútveg sem eina af undirstöðu atvinnugreinum Íslendinga og mikilvægan þátt í menningu okkar og arfleið. Í náminu verður auk kjarnagreina boðið upp á áfanga í sjávarútvegsfræðum, vinnuvistfræði, námstækni, fiskvinnslu og rekstri fiskvinnslufyrirtækja. Þá er lögð rík áhersla á vinnustaðanám og tengsl við fyrirtæki og stofnanir. Hægt verður að velja áfanga í sjávarlíffræði, umhverfisfræði og matvælafræði. Í boði verður námsleið til stúdentsprófs ásamt styttri námsleið í fiskvinnslu til framhaldsskólaprófs.

Námið leggur góðan grunn fyrir starfsfólk í fiskiðnaði en einnig þá sem vilja undirbúa háskólaná.

Nánari upplýsingar um námið veitir Anna María Jónsdóttir sjávarútvegsfræðingur sem er verkefnisstjóri námsins.

www.mtr.is  sími 460 4240