KEA úthlutar úr Menningar- og viðurkenningasjóði

KEA úthlutar úr Menningar- og viðurkenningasjóði

Nítján einstaklingar og félagasamtök tóku á móti styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA í gær en  Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti styrkina. Þar af fengu fjórir aðilar úr Dalvíkurbyggð styrk en það voru: Karlakór Dalvíkur vegna tónleikahalds, Urðarkirkja í Svarfaðardal vegna endurbyggingar á kirkjunni, Zophonías Jónmundsson til endurbyggingar fjallaskálanum á Dynjandisheiði og Náttúrusetrið á Húsabakka vegna stofnunar setursins.

Úthlutað var úr flokki almennra styrkja og þátttökuverkefna samtals að upphæð 4,3 milljónir króna.
Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember síðastliðnum og bárust 114 styrkumsóknir, 75 umsóknir í flokki almennra umsókna og 39 umsóknir um þátttökuverkefni. Fjórtán aðilar hlutu almennan styrk hver að upphæð 150 þúsund og 5 aðilar hlutu þátttökustyrk, en til úthlutunar í þeim flokki voru 2,2 milljónir króna.
Flokkur almennra styrkja. Hver styrkur kr. 150.000,-. Eftirtaldir fengu úthlutun:

• Ólafur Kárason, vegna síldartónleika á Siglufirði 2009
• Myndlistarfélagið, félag myndlistarmanna á Akureyri
• Listalíf/Gísli Sigurgeirsson, vegna bókar og heimildarmyndar
um Sr. Pétur Þórarinssson
• Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls, til tónleikahalds
• Litla ljóðahátíðin, til að halda ljóðahátíð- Populus Tremula
• Útgerðarminjasafnið á Grenivík, til að koma upp sýningu um
línuútgerð
• Jassklúbbur Ólafsfjarðar, til að halda tónleikahátíð í Ólafsfirði
• Ferðafélag Akureyrar og Ferðafélagið Hörgur, vegna gerðar
gönguleiðakorts af Tröllaskaga
• Stúlknakór Akureyrarkirkju, til að gefa út geisladisk
• Karlakór Dalvíkur, vegna tónleikahalds
• Bjarni E. Guðleifsson , vegna útgáfu bókarinnar „Á
fjallatindum“
• Davíð Hjálmar Haraldsson, vegna útgáfu ljóðabókar
• Urðarkirkja Svarfaðardal, vegna endurbyggingar á kirkjunni
• Brynjar Halldórsson, til útgáfu bókarinnar „Ættir Þingeyinga“

Eftirtaldir hlutu styrk úr flokki þátttökuverkefna:

• Zophonías Jónmundsson, til endurbyggingar á
fjallaskálanum á Dynjandisheiði
- kr. 150.000.
• Íþróttafélagið KA, til að bjóða atvinnulausu fólki upp á íþróttir
og afþreyingu
– kr. 500.000.
• Amtsmannssetrið á Möðruvöllum, til uppbyggingar setursins
– kr. 700.000.
• Gestur Einar Jónasson, til að gera sjónvarpsmynd um líf og
starf á Akureyrarflugvelli – kr. 150.000.
• Náttúrusetrið á Húsabakka, vegna stofnunar setursins– kr.
700.000.