Karlakór Dalvíkur á Heklumót og frumflutningur á nýju íslensku tónverki eftir Guðmund Óla Gunnarsson

Heklumót, 2008, verður haldið í Íþróttahöllinni á Húsavík, laugardaginn 1. nóvember, klukkan 14:00. Hekla, samband norðlenskra karlakóra, stendur fyrir mótinu. Heklumót eiga sér ríflega sjö áratuga sögu. Átta karlakórar taka þátt að þessu sinni. Á þriðja hundrað manna karlakór frumflytur nýtt íslenskt tónverk. 

Átta karlakórar
Þátttakendur í Heklumóti 2008 að þessu sinni eru: Karlakór Akureyrar-Geysir, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, Karlakór Dalvíkur, Karlakórinn Drífandi á Fljótsdalshéraði, Karlakórinn Ernir á norðanverðum Vestfjörðum, Karlakór Eyjafjarðar, Karlakórinn Heimir í Skagafirði og gestgjafarnir að þessu sinni, Karlakórinn Hreimur á Húsavík.

Nýtt íslenskt tónverk
Undirbúningsnefnd Heklumóts 2008 fékk Guðmund Óla Gunnarsson, tónlistarkennara og stjórnanda, til að semja nýtt lag fyrir þetta mót. Verkið ber heitið; "Þú, sem eldinn átt í hjarta," og er samið við texta Davíðs Stefánssonar. Þarna verður því um frumflutning að ræða á nýju íslensku tónverki, sem samið er fyrir karlakóra.

Sungið í sjötíu ár
Heklumót hafa verið haldin frá því árið 1935, mótin eru haldin fjórða hvert ár og er þetta hið sautjánda í röðinni. Á Heklumóti 2008 syngur hver kór fyrir sig þrjú lög og síðan syngja allir kórarnir saman fimm lög, sérstaklega valin fyrir þetta tækifæri. Þar skiptast söngstjórar kóranna á að stjórna. Vel á þriðja hundrað karlar munu þar sameinast í söng. Heklumót er því sannkölluð söngveisla sem enginn unnandi kórsöngs má láta fram hjá sér fara!


Sameiginleg lög allra kóranna:

Heklusöngur
Lag - Áskell Snorrason / Texti - Jónas Tryggvason
Stjórnandi: Petra Björk Pálsdóttir

Förumannaflokkar þeysa
Lag - Karl O. Runólfsson / Texti - Davíð Stefánsson
Píanisti - Aladár Rácz
Stjórnandi: Valmar Väljaots

Landsýn (Landkjending)
Lag - Edvard Grieg / Texti - Björnstjerne Björnson
Þýðing texta - Sigurður Júlíus Jóhannesson
Píanisti - Aladár Rácz / Einsöngur - Baldvin Kr. Baldvinsson
Stjórnandi: Stefán R. Gíslason

Þú, sem eldinn átt í hjarta
Lag - Guðmundur Óli Gunnarsson / Texti - Davíð Stefánsson
Píanisti - Aladár Rácz
Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson

Lofsöngur
Lag - Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Texti - Matthías Jochumsson
Stjórnandi: Margrét Gunnarsdóttir

Frétt fengin af www.dagur.net