Kamil 5 ára

Kamil 5 ára

Á morgun 5. júlí verður Kamil 5 ára. Við héldum upp á daginn hans í dag, Kamil bjó sér til fallega kórónu og síðan bauð hann upp á ávexti á söngfundi. Við sungum afmælissönginn fyrir hann og svo fór hann út og flaggaði íslenska fánanum með Steinunni Sóllilju sem á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið þitt elsku Kamil og fjölskylda