K-listi Dalvíkurbyggðar og Framsókn og óháð mynda nýjan meirihluta í Dalvíkurbygg

K-listi Dalvíkurbyggðar og Framsókn og óháð mynda nýjan meirihluta í Dalvíkurbygg

K-listi Dalvíkurbyggðar og Framsóknarflokkurinn og óháðir hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Með samstarfinu mynda flokkarnir fjögurra manna meirihluta af sjö fulltrúum sveitarstjórnar.

Samkvæmt samkomulaginu verður Helgi Einarsson formaður byggðarráðs á kjörtímabilinu og Monika Margrét Stefánsdóttir tekur við embætti forseta sveitarstjórnar.

Helgi og Monika við undirritun meirihlutasamkomulags í ráðhúsinu í dag.

Jafnframt hefur verið ákveðið að Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir verði áfram sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Meirihlutinn telur mikilvægt að tryggja stöðugleika í stjórnsýslu sveitarfélagsins og byggja áfram á þeirri reynslu og þekkingu sem fyrir hendi er innan stjórnsýslunnar.

Í sameiginlegri yfirlýsingu meirihlutans kemur fram að markmið samstarfsins sé að tryggja ábyrga og trausta stjórn sveitarfélagsins, efla þjónustu við íbúa og styðja við áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs, innviða og samfélags í Dalvíkurbyggð. Þá verði lögð sérstök áhersla á gott samstarf við íbúa, rekstrarlegt aðhald og framsækna uppbyggingu á öllum sviðum sveitarfélagsins.

„Við höfum náð góðu samkomulagi um þau verkefni sem fram undan eru og teljum að þessi meirihluti sé vel í stakk búinn til að leiða sveitarfélagið áfram á næstu árum. Áframhaldandi starf Eyrúnar sem sveitarstjóra skapar mikilvægan stöðugleika og samfellu í rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins,“ segir í yfirlýsingu nýs meirihluta.

Nánari upplýsingar um málefnasamning og skipan ráða og nefnda verða kynntar á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar á næstu dögum.

Hluti af frambjóðendum K-lista Dalvíkurbyggðar & lista Framsóknar og Óháðra við undirritun
í dag.