Júnílokun í Sundlaug Dalvíkur.

Sundlaug Dalvíkur verður lokuð frá mánudeginum 7. júní til fimmtudagsins 17. júní vegna breytinga sem eru áfangi í að taka nýjan inngang íþróttamiðstöðvar í gagnið.
Meðal þess sem þarf að gera er frágangur á lóð í kring um inngang, endanlegur frágangur á inngangi (forsal) og mótttöku/afgreiðslu sem verður flutt úr núverandi rými og suður fyrir turninn. Einnig verður farið í viðgerðir í sundlaug, endurnýjun og samtenging hússtjórnarkerfis og tölva auk þess að eftirlitsmyndakerfi verður endurnýjað og samhæft. Á sama tíma fara fram þrif og tiltekt í laugarhúsi, auk þess að starfsfólk sækir nauðsynleg námskeið og tekur öryggispróf sundstaða.

Gert er ráð fyrir að opnun á nýjum inngangi og afgreiðslu verði fagnað með uppákomu á 17.júní en það verður auglýst sérstaklega í dagskrá þjóðhátíðardagsins.

Sumaropnun tekur ekki gildi fyrr en lokun lýkur, skv. áætlun er það þá helgin 19. og 20. júní. Í sumar verður opið um helgar frá kl. 10:00 til kl. 19:00. Virka daga verður opið 06:15 til kl. 20:00.

Sundskáli Svarfdæla verður opinn með eftirliti nokkra tíma á dag meðan á lokun sundlaugar stendur, þetta verður nánar auglýst með auglýsingu sem borin  verður út  á næstu dögum og einnig tilkynnt hér á heimasíðunni.