Jónsmessubál á Tungurétt

Hið árlega jónsmessubál á vegum Ferðatrölla verður kynt við Tungurétt þriðjudagskvöldið 23. júní. Áætlað er að kveikja í bálkestinum kl. 22:00. Leikfélag Dalvíkur flytur leikverk, sungnir verða fjöldasöngvar og Kvennfélagið Tilraun selur kaffi og kakó með viðbiti í Tunguseli.

Ferðatröll vonast til að sjá sem allra flesta á Tungunum þetta kvöld að fagna jónsmessu og faðmi Svarfdælskra fjalla.