Jólaþorp bæjarskrifstofunnar

Jólaþorp bæjarskrifstofunnar

Á hverju ári, í kringum aðventuna, rís jólaþorp á bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar. Jólaþorpið hefur verið í stöðugri þróun síðustu árin og er einkar veglegt að þessu sinni eins og meðfylgjandi myndir sýna. Ýmsar skemmtilegar persónur búa í jólaþorpinu og hver og einn getur búið til sína sögu um staðinn.

Allir sem vilja skoða jólaþorpið eru velkomnir í anddyri Ráðhúsins á 1. hæð.