Jólasveinarnir mæta á svalirnar

Jólasveinarnir mæta á svalirnar

Loksins, LOKSINS! Næstkomandi sunnudag, þann 12. desember kl. 14.00, ætla jólasveinarnir að koma fram á svölum gamla Kaupfélagshússins á Dalvík.
Þeir ætla að syngja og gleðja unga jafnt sem aldna. Nú sem endra nær eru að sjálfsögðu allir velkomnir og við minnum sérstaklega vel á allar persónubundnar smitvarnir, grímur og fjarlægðartakmörk.