Jólastemmning fortíðarinnar - Laufás

Jólastemmning fortíðarinnar verður endurlífguð sunnudaginn 10. desember frá 13:30 - 16 í Gamla bænum Laufási við utanverðan Eyjafjörð. Þá mun gestum og gangandi gefast kostur á því að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla sveitasamfélaginu.

Jólaundirbúningurinn hefst með jólastund kl 13:30 í Laufáskirkju, en hún er fyrir börn á öllum aldri. Í Gamla bænum mun eldur loga á hlóðum og krauma í feitinni á meðan laufabrauðið er skorið og steikt. Hangikjötsilmur læðist um híbýlin og lokkar án efa til sín fyrsta jólasveininn, Stekkjastaur, á leið hans til byggðar. Jólaskraut eins og tíðkaðist á þessum tíma verður búið til, jólatréð verður skreytt og unnið verður að kertagerð svo eitthvað sé nefnt. Að sjálfsögðu verður hellt uppá hið rómaða kúmenkaffi og gestum boðið að smakka ásamt hangikjöti og laufabrauði. Jólamarkaðurinn verður á sínum stað í skálanum og lifandi jólatónlist mun óma um sveitina.

Kakó og smákökur verða af þessu tilefni til sölu í nýlegum veitingasal Gamla Prestshússins.

Það er Laufásshópurinn ásamt fjölda annarra velunnara Gamla bæjarins sem gerir það mögulegt að hægt er að upplifa jólaundirbúning gamla sveitasamfélagsins á þennan hátt.

Aðgangseyrir er kr. 400- fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börnin.