Jólagjöf til starfsmanna Dalvíkurbyggðar – gjafabréf

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. 

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Dalvíkurbyggðar gegn framvísun gjafabréfsins.

Gert er ráð fyrir að gjafabréfin verði hægt að nota frá 2. desember 2014 til og með 15. janúar 2015

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera ,sem og starfandi, í Dalvíkurbyggð.

Skráningarfrestur er til 28. nóvember.

Skráning fer fram á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is  og nánari upplýsingar gefur Margrét í síma 460 4908.