Jólagjöf frá Lionsklúbbnum Sunnu

Jólagjöf frá Lionsklúbbnum Sunnu

Lionskonur komu færandi hendi með fern rúmföt úr Svefn og heilsu til gjafar í Skammtímavistun Skógarhóla. Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Þórhalla Karlsdóttir veittu rúmfötunum móttöku. Gjöfin mun nýtast heimilinu mjög vel og viljum við koma á framfæri miklu þakklæti til Lionskvenna fyrir rausnarlega gjöf.