Jólagjafir til vinabæjar Dalvíkurbyggðar á Grænlandi

Þessa dagana stendur yfir söfnuna á vegum Ferðaskrifstofu Nonna Travel á jólagjöfum handa börnunum í Ittoqqortoormiit á austuströnd Grænlands, en það er einn af vinabæjum Dalvíkurbyggðar.

Ef einhver á vel með farin barnaföt eða leikföng heima, fyrir aldurinn 0-13 ára, sem enginn er að nota lengur væri tilvalið að láta þau ganga til þessa málefnis.

Tekið verður á móti framlögum á skrifstofu Nonna Travel í Brekkugötu 5 á milli 10:00 og 14:00. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofuna ef komið er utan opnunartíma í síma 461 1841 og þar er einnig hægt að fá frekari upplýsingar.

Til þess að gjafirnar skili sér á réttum tíma verða þær sendar út 18. nóvember og því þurfa þær að berast fyrir miðja næstu viku.  Við skulum því taka höndum saman og leita í fötum og leikföngum að einhverju sem gæti glatt lítið hjarta.