Jólaföndur í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar

Hið vinsæla jólaföndur í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar verður sem hér segir: Í Árskógarskóla fimmtudaginn 29. nóvember frá kl. 17:00 - 20:00 og í Dalvíkurskóla laugardaginn 1. desember. frá kl. 11:00 - 14:30. Á sama tíma verða nemendur með kaffisölu, ágóði af henni rennur í ferðasjóð þeirra. Það er þess virði að líta inn, föndra, fá sér kaffi og eiga ljúfa stund með börnum sínum og unglingum, foreldrar eru um leið hvattir til að senda börnin sín ekki ein. Nemendur, mömmur, pabbar, afar, ömmur, frænkur, frændur og aðrir velunnarar skólans, við hlökkum til að sjá ykkur.