Jólaföndur foreldra

Jólaföndur foreldra

Í síðustu viku komu mömmur, pabbar, afar og ömmur hingað í leikskólann til að föndra með börnunum sínum. Búnir voru til allskonar jólakort, englar og jólakettir. Sköpunargleðin var allsráðandi og greinilegt var að þeir fullorðnu skemmtu sér jafnvel og börnin. Myndirnar tala sínu máli en þær er hægt að skoða í myndasafni.