Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í heimsókn

Í dag kom Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í heimsókn í Dalvíkurbyggð. Jóhanna átti fund með stjórn Dalbæjar ásamt því að skoða Dalbæ. Þá átti hún fund með bæjarstjóra, formanni bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs. Jóhanna kynnti sér einnig félagsmálasvið og fræðslusvið Dalvíkurbyggðar.