Janúar - TENGJA

Janúar -Tengja

Húsabakka 5. janúar 2005

Heil og sæl, 

gleðilegt ár og takk fyrir það sem liðið er. 

Nú eru allir komnir í skólann eftir jólafrí eftir  sem lengdist óvænt um einn dag vegna ófærðar. Við skulum vona að tíðarfarið verði á þann veg að við getum haldið uppi skólastarfi eins og áætlað er.

Þrettándabrennan:

Fimmtudaginn 6. janúar kl. 20:30 verður, ef veður leyfir, kveikt í þrettándabrennu Foreldrafélags Húsabakkaskóla. Að venju verður samsöngur undir stjórn Hjörleifs, Björgunarsveit Dalvíkur verður með flugeldasýningu og Foreldrafélagið býður upp á heitt kakó og kex.

Foreldrar eru beðnir um að brýna fyrir börnum sínum notkun öryggisgleraugna og að þau fari varlega með flugelda og blys.


Söngur á sal:

Söngur á sal verður mánudagana  10. og 24. janúar í litla salnum á Rimum kl. 11:25  til 11:55. Allir eru velkomnir.

Fyrsta kvöldvaka og gisting ársins:

Fyrsta kvöldvaka og gisting ársins 2005 verður þriðjudaginn 25. janúar. Okkur vantar 2 foreldra sem geta verið á næturvakt. Vinsamlegast hafið samband við skólastjóra fyrir 20. janúar ef þið sjáið ykkur fært að vera á vakt.

Foreldrastarfið á Húsabakka:

Okkur vantar foreldra í nokkur störf fram á vorið, vinsamlegast hafið samband við Ingileif eða Kristínu á Bakka ef þið sjáið ykkur fært að taka einhver af þeim að ykkur. Talan innan sviga táknar fjölda starfa:

Undirbúningur öskudags (1)

Umsjón með kaffi á öskudag (2)

Næturvakt á gistingu eldri nemenda 16. mars (2)

Næturvakt á gistingu eldri nemenda 26. apríl (2)

Grill á síðasta skóladegi (1)

Umsjón með leikjum eftir grill síðasta skóladag 26. maí (2)

Hækkun gjaldskráa:

Frá og með síðustu áramótum hækkaði gjaldskrá leikskóladeildarinnar um 5% og gjaldskrá mötuneytisins um 10%.

Sundkennsla 1. og 2. bekkjar:

Sundkennsla yngstu barnanna á haustönn er lokið. Kennslan hefst aftur þegar tekur að vora og hlýna. Sundtíminn er nú orðinn að tíma hjá umsjónarkennara.

Kennaranemar:

Kennaranemarnir Erna og Marín sem komu hingað í verkfallinu eru nú komnir aftur til þess að ljúka vettvangsnámi sínu. Þær verða hjá okkur til 21. janúar. Þær verða eins og áður að mestu við íslenskukennslu í 4. - 8. bekk.

Fullorðinsfræðslan á Húsabakka:

Af ýmsum ástæðum hefur engin fullorðinsfræðsla verið á haustönn þessa skólaárs. Á vorönninni verður boðið upp á eftirfarandi námskeið:

Námskeið í ullarþæfingu

Kennari:                 Ingibjörg Kristinsdóttir (Lilla)

Fjöldi skipta:          Fjögur kvöld

Hvenær:                Fim. 20. og 27. jan. og þri. 1. og 8. feb.

                               Kl. 20:00-23:00

Hvar;                     Ytra húsinu á Húsabakka.

Kostnaður:            kr. 8.000,- auk efnisgjalds sem fer eftir því hve mikið efni nemendur nota á námskeiðinu.

Lágmarksfjöldi:      Fimm

Hámarksfjöldi:       Tíu

Skráning:               Fyrir 17. janúar í síma 466-1551 eða á netfanginu husabakki@dalvik.is


 

Fyrirlestrar um Hallgrím Pétursson

og

Passíusálmana

Í samvinnu við Eyjafjarðarprófastsdæmi verður í febrúar boðið uppá þrjá fyrirlestra um Hallgrím Pétursson og Passíusálmana. Enginn aðgangseyrir er að fyrirlestrunum og getur fólk mætt á þá alla eða einungis þá sem þeir velja úr. Við viljum samt biðja fólk um að skrá sig í síma 466-1551 eða á netfanginu husabakki@dalvik.is í síðasta lagi mánudaginn 31. janúar.

Í framhaldi af þessum fyrirlestrum er hugmyndin að koma saman hópi fólks sem er tilbúið að lesa Passíusálmana í kirkjunum í Svarfaðardal og á Dalvík á föstudaginn langa.

Auglýsing með nánari upplýsingum um innihald hvers fyrirlestrar ásamt staðfestum dagsetningum verður send út þegar nær dregur.

Fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20:30 að Rimum

Sigríður Munda Jónsdóttir sóknarprestur í Ólafsfirði fjallar um ævi og starf Hallgríms Péturssonar.

Fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20:30 að Rimum

Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur Eyjafjarðarprófastsdæmis fjallar á myndrænan hátt um Passíusálmana og píslarsöguna.

Fimmtudaginn 17. febrúar kl. 20:30 að Rimum

Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur sem m.a. hefur skrifað Reisubók Guðríðar Símonardóttur, fjallar um skáldið Hallgrím Pétursson.

Tölvunámskeið og bakstur ítalskra brauða

Í mars og apríl er fyrirhugað að halda stutt tölvunámskeið í notkun forritsins Photo Shop þar sem farið er yfir skönnun og stafrænar myndavélar. Einnig er í bígerð að fá til okkar matreiðslumeistarann Friðrik V. Karlsson (Friðrik fimmta) til þess að leiðbeina okkur í bakstri ítalskra brauða. En allar upplýsingar um þau námskeið verða sendar út þegar nær dregur.

 

Með kveðju frá Húsabakka,

Ingileif