Jakob Helgi við æfingar og keppni í Noregi

Jakob Helgi við æfingar og keppni í Noregi

Jakob Helgi Bjarnason, skíðamaður frá Dalvík, hefur verið við æfingar og keppni í Noregi síðustu daga. Jakob er 14 ára og keppti á tveimur mótum, svigi og stórsvigi, dagana 20. og 21.janúar sl.

Mótin eru fylkismót í Akershusfylki þaðan sem flestir af bestu skíðamönnum Noregs koma. Svigmótið var haldið í Kirkerud í nágrenni Óslóar þann 20. janúar og þar sigraði Jakob Helgi með því að keyra seinni ferðina á lang besta tímanum. Jakob lenti í smáóhappi í startinu í fyrri ferð og var í 4. sæti eftir hana.
Næstir á eftir Jakobi voru 2 af bestu skíðamönnum Noregs í 13-14 ára flokki en það eru Martin Jessen og Martin Fjeldberg. Þessir 2 kappar hafa nýlega tryggt sér rétt til þess að keppa á eins konar heimsmeistarmóti í 13-14 ára flokki fyrir Noregs hönd og munu þar aftur mæta Jakobi Helga á næstu vikum. Hægt er að skoða úrslit frá mótinu á www.bskalpint.no

Þann 21. janúar var seinna mótið haldið í Hurdal skammt norðan við Ósló og þá keppt í stórsvigi. Jakob Helgi sigraði einnig það mót með yfirburðum eða 2 sekúndum samanlagt. Úrslit úr stórsvigi má skoða á www.fremad.net

Jakob keppti einnig á mótum í Geilo í Noregi fyrir jólin og atti þar kappi við sömu stráka og á mótunum í Akerhusfylki og hafnaði þá í 2. sæti í stórsvigi, risasvigi og tvíkeppni en keyrði út úr í svigi. Úrslit úr því móti má sjá á: www.geiloil.no

Árangur Jakobs er frábær og gefur glöggt merki um að hann er kominn í fremstu röð í sínum aldursflokki í Noregi. En Norðmenn hafa jafnan skipað sér meðal þeirra bestu í heiminum.