Íþrótttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir starfsmanni

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir kvenmanni í 100% starf við laugarvörslu, afgreiðslu, þrif og baðvörslu frá 2. janúar 2017. Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2016.

 
Helstu störf eru baðvarsla, samskipti við viðskiptavini, sundlaugagæsla, þrif og afgreiðsla. Gildi fræðslu- og menningarsvið eru virðing, metnaður og jákvæðni.
 
Hæfniskröfur:
·        Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
·        Tuttugu ára eða eldri
·        Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
·        Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
·        Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
·        Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
·        Hreint sakavottorð
 
 
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð
 
 
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
 
 
Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is ), íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar