Íþróttaskóli barnanna er að hefjast

Íþróttaskólinn er 10 tíma námskeið sem hefst laugardaginn 15. september nk. Námskeiðið verður á laugardagsmorgnum í glæsilegu íþróttamiðstöðinni okkar frá kl. 11:00-12:00 og er ætlað börnum fæddum 2007-2010. Kennarar eru Harpa Rut Heimisdóttir íþróttafræðingur, M.S. og Valdís Guðbrandsdóttir iðjuþjálfi.


Mælt er með að börnin mæti í þægilegum fötum og berfætt svo þau nái sem bestu gripi á gólfinu og renni ekki til. Ætlast er til að foreldrar og/eða forráðamenn taki þátt í tímunum með börnunum og séu þeim til aðstoðar t.d. í áhaldahringjum, við klifur og fleira. Foreldrar og/eða forráðamenn bera alla ábyrgð á börnum sínum en námskeiðshaldarar reyna eftir fremsta megni að tryggja öryggi þeirra í æfingunum.

Markmið íþróttaskólans eru:

  • að efla hreyfiþroska og hreyfigetu barnanna
  • að auka úthald, sjálfstraust og vellíðan barnanna
  • að losa um streitu og umfram orku
  • að börnin læri á líkama sinn
  • að efla samhæfingu
  • að vernda heilsu barnanna
  • að börnin læri ýmis stöðuhugtök, átti sig á rými, fjarlægðum og áttum
  • að börnin læri að fara eftir reglum
  • að hvetja börnin til áframhaldandi íþróttaiðkunar

Námskeiðsgjald fyrir 10 tíma er 7000 kr (veittur er 50% systkinaafsláttur). Tekið er við greiðslum í fyrsta tíma.


Skráningar skulu hafa borist fyrir fimmtudaginn 13. september á netföngin harpa@dalvikurbyggd.is  eða valdis@dalvikurbyggd.is  . Vinsamlegast skráið þá nafn barns, fæðingarár og símanúmer foreldri/forráðamanns.


Sjáumst hress og kát
Harpa Rut og Valdís