Íþróttamiðstöðin komin á fulla ferð.

Íþróttamiðstöðin komin á fulla ferð.

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar er komin á fulla ferð eftir sumardvala. Fastir tímar eru komnir af stað samkvæmt meðfylgjandi töflu. Með lækkandi sól fara skólarnir einnig af stað og sundkennslan er kominn í fullan gír, það eru þó nokkrir lausir tímar í sundlauginni á morgnana fyrir þá sem vilja nýta morgnana í það að synda. Líkamsræktarsalurinn í Íþróttamiðstöðinni er svo opinn frá 06:15 á morgnana og því um að gera að nýta sér hann.

Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar er til þjónustu reiðubúið til að svara öllum spurningum varðandi tímatöflur, kort og flr.