Íþróttamiðstöðin auglýsir eftir karlmanni í 100% starf

Íþróttamiðstöðin auglýsir eftir karlmanni í 100% starf

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir karlmanni í 100% starf við laugarvörslu, afgreiðslu, þrif og baðvörslu frá 2. janúar 2020.
Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember 2019.

Helstu störf eru baðvarsla, samskipti við viðskiptavini, sundlaugagæsla, þrif og afgreiðsla.
Gildi fræðslu- og menningarsviðs eru virðing, jákvæðni, metnaður.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð
  • Viðkomandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða


Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar, á netfanginu gislirunar@dalvikurbyggd.is.