Íþróttamiðstöð: sundlaugarvörður
Hjá Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar er laus 100% vaktavinnustaða til umsóknar sundlaugavarðar (kvenkyns). Um ótímabundið starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sundlaugagæsla
- Klefavarsla
- Afgreiðsla og samskipti við viðskiptavini Íþróttamiðstöðvar
- Þrif mannvirkis
Hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
- Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góð íslenskukunnátta er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2025
Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsækjendum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is). Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar (jonsi@dalvikurbyggd.is).
Sundlaug Dalvíkurbyggðar var tekin í notkun haustið 1994 og er hún afar vinsæl meðal ferðamanna. Þar má finna 12,5m x 25m sundlaug, heita potta, barna- og hvíldarlaug, vatnsrennibraut, vatnssvepp og eimbað. Við sundlaugina er íþróttahús sem var tekið í notkun árið 2010.
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.