Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir kvenmanni í 100% starf og karlmanni í 100% starf

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir kvenmanni í 100% starf og karlmanni í 100% starf

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir kvenmanni í 100% starf og karlmanni í 100% starf við laugarvörslu, afgreiðslu, þrif og baðvörslu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2019.

Helstu störf eru baðvarsla, samskipti við viðskiptavini, sundlaugagæsla, þrif og afgreiðsla.
Gildi fræðslu- og menningarsvið eru virðing, metnaður og jákvæðni.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
  • Tuttugu ára eða eldri
  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð
  • Viðkomandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða

 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is) íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar.