Íþróttamiðstöð Dalvíkur leitar að starfsmanni í líflegt og skemmtilegt starf

Íþróttamiðstöð Dalvíkur auglýsir eftir kvenmanni í 100% starf við laugarvörslu, afgreiðslu, þrif og baðvörslu. Umsóknarfrestur er 1. september 2013.


Íþróttamiðstöð Dalvíkur leggur áherslu á öryggi gesta, veita góða þjónustu og að aðstaða sé ávallt snyrtileg. Það er líf og fjör í Íþróttamiðstöðinni frá morgni til kvölds.

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
• Umsjón með öryggi sundlaugargesta.
• Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
• Eftirfylgni með umgengnisreglum.
• Eftirlit með gæðum laugarvatns.
• Umsjón með hreinlæti.
• Minniháttar viðhald.
• Önnur störf falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur
Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa ríka þjónustulund, vera stundvís, hafa ágæta tölvukunnáttu og að taka frumkvæði.
Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sbr. reglugerð fyrir sundstaði. Starfsmenn þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Árni Jónsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í síma 4604913 eða með því að senda fyrirspurnir á arni@dalvikurbyggd.is 

 
Umsóknum með ferilsskrá skal skilað á bæjarskrifstofu eða með tölvupósti á arni@dalvikurbyggd.is  og verður móttaka umsókna staðfest .