Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011

Í gær, fimmtudaginn 29. desember, var kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar 2011 líst. Kosningarétt eiga, samkvæmt reglugerð um kjör Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar, aðalmenn í íþrótta- og æskulýðsráði auk fulltrúa stjórnar hvers félags sem sendir inn tilnefningar.

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011 er Sigurður Ingvi Rögnvaldsson en hann er jafnframt golfmaður Hamars 2011. Sigurður Ingvi varð á þessu ári fyrsti landsliðsmaður Golfklúbbsins Hamar. Hann tryggði sér sæti í unglingalandsliðinu og keppti fyrir hönd Íslands á Evrópumóti unglingalandsliða. Þá varð hann í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik, unglinga 17 til 18 ára. Einnig varð hann norðurlandsmeistari í 17 – 18 ári flokki unglinga. Sigurður Ingvi hefur verið fremstur í sínum aldursflokki um árabil og hefur með þrautseigju stundaði æfingar og keppni af miklu kappi og dug.

Í kjöri voru eftirtaldir í starfrófsröð.

Anna Kristín Friðriksdóttir           Hestamannafélagið Hringur
Björgvin Björgvinsson                 Skíðafélag Dalvíkur
Eva Hrönn Arnardóttir                Sundfélagið Rán
Kristinn Þór Björnsson               UMFS
Ólöf Rún Júlíusdóttir                   Reynir
Stefanía Aradóttir                       UMFS
Sigurður Ingvi Rögnvaldsdóttir    Golfklúbburinn Hamar

Auk þess að lísa kjöri Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar voru veittar viðurkenningar til þess íþróttafólks sem setti Íslandsmet í sínum keppnisgreinum á árinu.