Íþrótta- og tómstundastarf í Dalvíkurbyggð sumarið 2012

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur nú tekið saman viðamikinn kynningarbækling um íþrótta- og tómstundastarf í Dalvíkurbyggð sumarið 2012.

Kynningarbæklingurinn er gefin út í þeim tilgangi að taka saman upplýsingar um skipulögð viðfangsefni fyrir börn og unglinga í sveitarfélaginu sumarið 2012.

Íþrótta– og æskulýðsstarf í Dalvíkurbyggð er öflugt og um margt að velja t.d. æfingar í fótbolta, golfi, frjálsum íþróttum, sundi, námskeið í hestamennsku og leikjanámskeið.


Foreldrar, börn og unglingar eru hvött til þess að kynna sér kynningarritið og geyma á góðum stað til að geta fylgst með því sem í boði er.

Bæklinginn er hægt að nálgast á heimasíðu Sundlaugarinnar www.dalvikurbyggd.is/sundlaug en einnig er hægt að smella á hlekkinn hérna fyrir neðan.


Gleðilegt íþrótta– og útivistarsumar!!

 

Íþrótta - og tómstundastarf í Dalvíkurbyggð sumarið 2012