Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð

Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð

Helstu markmið sjóðsins eru að styðja og veita viðurkenningu fyrir góðan árangur og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Einnig að veita viðurkenningar til félaga fyrir gott fordæmi á sviði almenningsíþrótta.

Styrkumsóknir skulu berast sjóðsstjórn í gegnum Mína Dalvíkurbyggð (undir umsóknir) eigi síðar en sunnudaginn 26. nóvember 2017.

Reglur sjóðsins má finna hér:

Reglur fyrir Afreks-  og styrktarsjóð

 Nánari upplýsingar veitir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi