Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í afreks- og styrktarsjóð

Helstu markmið sjóðsins eru að styðja og veita viðurkenningu fyrir góðan árangur og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Einnig að veita viðurkenningar til félaga fyrir gott fordæmi á sviði almenningsíþrótta. Styrkumsóknir skulu berast sjóðsstjórn í gegnum Mína Dalvíkurbyggð (undir umsóknir) eigi síðar en sunnudaginn 28. nóvember 2016.
Reglur sjóðsins má finna hér: http://www.dalvikurbyggd.is/resources/Files/Reglugerdir/fraedslu/Afreks--og-styrkstarsjodur-Dalvikurbyggdar.pdf 

Nánari upplýsingar veitir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Gísli Rúnar Gylfason, í síma 460 4900 og á netfanginu gislirunar@dalvikurbyggd.is