Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kominn í Ráðhúsið

Bjarni Gunnarsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, hefur nú flutt skrifstofu sína í Ráðhúsið en hann var áður með aðsetur í Sundlaug Dalvíkur. Skrifstofa Bjarna er á annari hæð hjá skrifstofum Fræðslu- og menningarsviðs og er nú hægt að ná í Bjarna annars vegar með því að hringja í þjónustuver í síma 460-4900 eða í beint númer til hans, 460-4913. Á meðfylgjandi mynd má sjá Bjarna á nýju skrifstofunni.