Ísmót Hrings

Ísmót Hrings

Um komandi helgi er fyrirhugað að halda Ísmót Hrings. Vötn og ár eru ísilagðar og því kjör aðstæður til mótahalds. Í ár er áætað að mótið fari fram á Hrísatjörn, rétt sunnan Dalvíkur.

Keppt verður í tölti opnum flokki.
Skeið: 100m fljúgandi start (handtímataka)

Keppni hefst kl 13:00, laugardaginn 13.febrúar.

Skráningargjald er kr. 2000 á fyrstu skráningu 1500 á aðra skráningu per knapa. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu félagsins - á forsíðu hægra megin í valstiku "skráning í mót" fimmtudaginn 10.feb. kl 20:00


Fyrirspurnir varðandi mótið er hægt að senda á hringurdalvik@hringurdalvik.net  


Upplýsingar um mótið verða einnig uppfærðar á heimasíðu félagsins: www.hringurdalvik.net