Íslensku safnaverðlaunin 2010

Íslensku safnaverðlaunin 2010

Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár safni, sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr. Félag íslenskra safna og safnamanna og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) standa saman að verðlaununum.

Óskað er eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum. Til greina koma söfn og einstök verkefni á sviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Bent er á að tilnefna má sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi.

Valnefnd velur þrjú söfn eða verkefni sem tilnefnd verða til verðlaunanna á alþjóðadegi safna þann 18. maí, en afhending þeirra fer fram á íslenska safnadeginum 11. júní 2010.

Ábendingum skal skilað fyrir 19. apríl til Safnaráðs, Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, 101 Reykjavík, eða á netfangið safnarad@safnarad.is merkt Safnaverðlaun.