Íslenski safnadagurinn á Byggðasafninu Hvoli

Byggðasafnið Hvoll er skemmtilegt safn á Dalvík og þar verður haldið upp á Íslenska safnadaginn sunnudaginn 12. júlí eins og á fleiri söfnum á landi. Í tilefni dagsins verður frítt inn fyrir fjölskyldur en á safninu eru nýjar sýningar sem spennandi er fyrir fjölskyldur að skoða saman. Nánari upplýsingar um sýningarnar er að finna á síðunni www.dalvik.is/byggdasafn.