Íslandsmet hjá Stefaníu á æfingabúðamóti UMSE

Íslandsmet hjá Stefaníu á æfingabúðamóti UMSE

UMSE hélt æfingabúðamót í tengslum við Æfingabúðir UMSE á Laugum í Reykjadal síðustu helgina í maí. 

Skemmst er frá því að segja að þar náðist mjög fínn árangur í nokkrum greinum.

Dalvíkingurinn efnilegi Stefanía Aradóttir frá UMSE tvíbætti Íslandsmetið í sleggjukasti í 15-16 ára flokki meyja þegar hún kastaði 41,87m og 41,95m. Stefanía keppti með 3kg sleggju. Gamla metið átti Sandra Pétursdóttir ÍR ( 41,55m ), en Sandra er sá sleggjukastari sem stendur fremst í dag. Stefanía er einungis á yngra ári í þessum flokki og hefur kastað betur en hún gerði um helgina þannig að það má búast við að hún bæti þetta met enn meira.

Einnig vakti athygli árangur Sigurbjargar Áróru Ásgeirsdóttur 13 ára en hún kastaði 3kg sleggjunni 31,48m á sínu fyrsta móti utanhús á þessu ári. Íslandsmet 13-14 ára stelpna er 37,90m. Sigurbjörg keppir fyrir UMSE og er frá Ólafsfirði.

Annar efnilegur sleggjukastari frá UMSE er Eir Starradóttir 15 ára. Eir hefur verið búsett í USA síðastliðið ár og var að keppa á móti þar ytra um helgina. Eir kastaði kvennasleggjunni ( 4kg) 36,82m sem er innan við meter frá Íslandsmetinu með þessari þyngd.

Með þessum árangri eru Stefanía og Eir búnar að ná lágmörkum inn í afrekshóp FRÍ en Sigurbjörg Áróra náði lágmarki inn í úrvalshóp FRÍ þrátt fyrir að vera einungis 13 ára gömul.

Þorsteinn Ingvarsson HSÞ stökk 7,40m sem er 6 besti árangur frá upphafi í karlaflokki og Hafdís Sigurðardóttir HSÞ stökk 5,72m í kvennaflokki og hafa þau ekki byrjað utanhústímabilið betur.