Íris Hauksdóttir ráðin í starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar

Íris Hauksdóttir ráðin í starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar

Þann 26. febrúar síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýst starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa á fjármála- og stjórnsýslusviði. Alls bárust 21 umsókn um starfið.

Af þeim umsækjendum sem sóttu um starfið hefur Íris Hauksdóttir verið ráðin.  

Íris er með B. Sc. próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst. Íris hefur töluverða reynslu af þjónustustörfum, upplýsingagjöf, kynningarmálum og þekkingu á opinberri stjórnsýslu úr störfum sínum hjá Landsbankanum, Einingu- Iðju, sem sviðsstjóri húsnæðissviðs hjá Háskólanum á Bifröst og úr þátttöku sinni í nefndarstörfum og sveitarstjórnarmálum í Dalvíkurbyggð.

Við bjóðum Írisi velkomna til starfa