Íris Björk 6 ára

Íris Björk 6 ára

Á laugardaginn, 3. mars, varð Íris Björk 6 ára. Við héldum upp á afmælisdaginn hennar í leikskólanum á miðvikudaginn með því að hún flaggaði íslenska fánanum, bauð börnunum ávexti og var þjónn í hádeginu. Börnin sungu svo fyrir hana afmælissönginn. Hún bjó sér til glæsilega kórónu fyrir helgina svo hún gæti haft hana í veislunni sinni. Við óskum Írisi Björk og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.