Ipad, fjölmenning og jafnrétti - styrkir úr endurmenntunarsjóði grunnskóla

Nú nýverið fengu Árskógarskóli, Dalvíkurskóli og Fræðslusvið Dalvíkurbyggðar styrki úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2013-2014. Styrkir úr sjóðnum nýtast fyrst og fremst til námskeiðshalds og til að greiða laun fyrirlesara og sérfræðinga sem sjá um fræðslu starfsfólks grunnskóla. 

• Árskógarskóli fékk styrk til að halda námskeið um Ipad og skólastarf.

• Dalvíkurskóli fékk styrk til að halda námskeið um fjölmenningu í skólastarfi.

• Fræðslusvið Dalvíkurbyggðar fékk styrk til að halda námskeið um jafnrétti, einn af grunnþáttum nýrrar aðalnámskrár.

Það er gleðilegt að fá slíka styrki og vera vel vakandi fyrir þeim sóknarfærum sem skólarnir hafa en eins og allir vita er nauðsynlegt fyrir skólafólk að sinna reglulegri endurmenntun og vera í takt við það sem er að gerast í samfélaginu.

Styrkirnir mun eflaust nýtast skólunum vel á næsta ári.