Innskráning í grunnskóla skólaárið 2014-2015

Kæru foreldrar/forráðamenn barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2014


Í Dalvíkurbyggð starfa tveir skólar á grunnskólastigi, Árskógarskóli (1. – 7. bekkur auk leikskólastigs) og Dalvíkurskóli (1. – 10. bekkur). Skólaakstur er í boði milli þéttbýliskjarnanna svo mögulegt er að barn frá Dalvík sæki skóla í Árskógi og öfugt.

Þar sem valið er ykkar biðjum við ykkur góðfúslega að innrita barnið í annan hvorn skólann fyrir 1. apríl.


Innritun nýrra nemenda fer nú fram í gegnum rafræn eyðublöð á íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Vinsamlega farið á íbúagáttina á slóðinni http://min.dalvikurbyggd.is  til að innrita nemendur í skólann.


Til að skrá sig inn á íbúagáttina þarf notandi að hafa Íslykil. Hafir þú ekki Íslykil getur þú sótt um hann hér.


Starfsfólk skólanna veitir nánari upplýsingar og aðstoð ef með þarf. Hægt er að hringja í skólastjóra Árskógarskóla í síma 460-4971 eða senda tölvupóst á gunnthore@dalvikurbyggd.is .
Hægt er að hringja í Dalvíkurskóla í síma 460-4980 eða senda tölvupóst á netfangið ritari@dalvikurbyggd.is .


Virðingarfyllst,


Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla  www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli

Björn Gunnlaugsson, skólastjóri Dalvíkurskóla www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli