Innritun fyrir skólaárið 2013-2014 í Tónlistarskólanum

Innritun fyrir skólaárið 2013-2014 stendur nú yfir í Tónlistarskólanum okkar og stendur til 26. maí 2013.
Til þess að sækja um smellið á Inntritun á heimasíðu skólans www.dalvikurbyggd.is/tonlistarskoli/
Allir þurfa að sækja um fyrir næsta vetur, einnig þeir sem nú þegar eru í Tónlistarskólanum. Nýnemar fá staðfestingu í ágúst en núverandi nemendur halda sínu plássi ef sótt er um á tilskildum tíma.

Með tónlistarkveðjum,
starfsfólk Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.