Ingvi Örn Friðriksson - Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2019

Ingvi Örn Friðriksson - Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2019

Kjör íþróttamanns Dalvíkurbyggðar fór fram við hátíðlega athöfn í Bergi í dag kl. 17. Það var kraftlyftingamaðurinn Ingvi Örn Friðriksson sem varð fyrir valinu í ár en hann hefur stundað klassískar kraftlyftingar undanfarin ár með stórgóðum árangri. Á þessu ári varð hann til að mynda í landsliði KRAFT, varð í 2. sæti á Reykjavíkurleikunum og íslandsmeistari í réttstöðulyftu. Hann varð bikarmeistari í þyngdarflokk og á stigum, ásamt því að verða efstur á styrkleikalista 2019. Innilega til hamingju Ingvi Örn!

Aðrir tilnefndir voru eftirtaldir aðilar:

Amanda Guðrún Bjarnadóttir - golf
Andrea Björk Birkisdóttir - skíði
Elín Björk Unnarsdóttir - sund
Svavar Örn Hreiðarsson - hestar
Sveinn Margeir Hauksson - knattspyrna


Ingvi Örn Friðriksson, íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2019 

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri undirritaði, f.h. Dalvíkurbyggðar, samninga við íþróttafélögin sem gilda til næstu 4 ára. 


Frá undirritun samninga við íþróttafélögin


Íþrótta- og æskulýðsráð veitti heiðursverðlaun á athöfninni en þau komu að þessu sinni í hlut Kristjáns Ólafssonar sem hefur verið afar virkur í starfsemi íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð í áratugi. Kristján er afar vel að þessum heiðursverðlaunum kominn og óskum við honum innilega til hamingju.

Einnig voru við þetta tækifæri afhentir styrkir til iðkenda og voru þeir afhentir í eftirfarandi röð:

a) Rebekka Lind Aðalsteinsdóttir vegna ástundunar og árangurs í knattspyrnu.
b) Amalía Nanna Júlíusdóttir vegna ástundunar og árangurs í sundi.
c) Ingvi Örn Friðriksson vegna ástundunar og árangurs í kraftlyftingum.
d) Amanda Guðrún Bjarnadóttir vegna ástundunar og árangurs í golfi.
e) Guðfinna Eir Þorleifsdóttir vegna ástundunar og árangurs á skíðum.
f) Snorri Guðröðarson vegna ástundunar og árangurs í frisbí-golfi.
g) Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir vegna ástundunar og árangurs í knattspyrnu.

Þá var knattspyrnudeild Dalvíkur/Reynis einnig veittur styrkur vegna búnaðarkaupa fyrir afreksþjálfun á nýjum gervigrasvelli.


Þ-in 3 - Þorsteinn, Þröstur og Þormar fluttu lagið "Running away" sem þeir sömdu og eru á leið með í söngkeppnina Norðurorg.