Íbúafundur í Dalvíkurbyggð um málefni er snúa að laxeldi

Íbúafundur í Dalvíkurbyggð um málefni er snúa að laxeldi

Haldinn verður íbúafundur í Árskógi, mánudagskvöldið 22.október næstkomandi kl. 20:00.

 

Til umræðu verða umsóknir og hugmyndir sem fyrir liggja um eldi og vinnslu á laxi í landi sveitarfélagsins.

Kynnt verða áform fyrirtækja um uppbyggingu og starfsemi í sveitarfélaginu á sviði laxeldis. Þá verður leitað eftir huga íbúanna til laxeldis í sjókvíum í Eyjafirði.

Á fundinn mæta sveitarstjóri og kjörnir fulltrúar ásamt þeim sviðsstjórum sveitarfélagsins sem umsóknirnar snúa að.

Við hvetjum íbúa til að fjölmenna á fundinn. 

 

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð

Katrín Sigurjónsdóttir