Íbúafundur í dag, 26. október

Fundur íbúa og bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar verður haldinn  í Bergi þriðjudaginn 26. október.
kl. 17 – 19.  Bæjarstjórnin býður íbúum Dalvíkurbyggðar til fundarins.

Tilgangur fundarins er að ræða saman um stöðu og möguleika sveitarfélagsins og gefa íbúum kost á að koma á framfæri athugasemdum og hugmyndum.
Mætið endilega og komið með ábendingar um það hvernig við getum gert enn betur.