Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla

Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla

Komið sæl

Í vikunni sem leið fengu foreldrar og starfsfólk leikskólanna Krílakots og Kátakots ásamt fræðslus- og menningarsviði hvatningarverðlaun frá samtökunum Heimili og skóli.

Þetta er mikil viðurkenning og getum við verið mjög svo stolt af þessum verðlaunum.

36 verkefni voru tilnefnd en aðeins þrjú verkefni fengu viðurkenningu.

Til hamingju allir sem að verkefninu komu. Þetta er hægt með metnaðarfullu starfi og samvinnu og gaman að sjá hve foreldrar og börn eru áhugasöm að fá skjóðurnar lánaðar heim.

Hér má sjá fréttina á heimasíðu samtakanna Heimili og skóli

http://www.heimiliogskoli.is/2014/05/viskubrunnur-hlaut-foreldraverdlaun-heimilis-og-skola/

Bestu kveðjur