Hvatagreiðslur

Hvatagreiðslur

Íþrótta- og æskulýðsráð hefur samþykkt breytingar á hvatagreiðslum til barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára. Breytingin hljóðar upp á að miða við fæðingarár í stað afmælisdag. Geta því börn sem verða 6 ára á árinu byrjað að fá hvatagreiðslur strax í upphafi árs, óháð því hvenær á árinu þau eru fædd.

Reglurnar í heild má finna hér

Nánari upplýsingar um hvatagreiðslur veitir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.