Hvað er að gerast á Húsabakka?

Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar boðar til íbúafundar að Rimum fimmtudagskvöldið 5. maí kl. 20.30.

Efni fundarins er:
1. Kynning á þeirri starfsemi sem nú er að Húsabakka og Rimum og framtíðaráform þeirra sem að henni standa.
2. Hugmyndir sem uppi eru um mögulega aðra starfsemi á staðnum.

Nefnd bæjarstjórnar um málefni Húsabakka og Rima tekur þátt í fundinum.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í stefnumótun um nýtingu staðarins.