Hundahald í Dalvíkurbyggð

Þeir íbúar sveitarfélagsins sem búa utan lögbýla og vilja hafa hund þurfa að fá til þess leyfi skv. samþykkt um hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð.

Reglulega berast bæjarskrifstofu ábendingar um hunda sem talið er að ekki sé leyfi fyrir.

Nú er verið að ganga frá lista yfir skráða hunda og eigendur þeirra og hefur Persónuvernd verið kynnt sú ákvörðun að sá listi verði birtur á heimsíðu sveitarfélagsins í byrjun næstu viku, svo bæjarbúum sé ljóst hvaða hundar eru skráðir, og til hvatningar fyrir þá hundaeigendur sem eru með óskráða hunda að ganga frá sínum málum í samræmi við samþykktina.
Eru þeir hér með hvattir til að gera það hið fyrsta.