Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

Vegna óviðráðanlegra orsaka náðist ekki að hafa árlega hunda- og kattahreinsun í desember og fer hún því fram í Dalvíkurbyggð dagana 13. og 14. janúar 2021, frá kl.16:00 – 18:00 báða dagana.

Kattahreinsun fer fram miðvikudaginn 13. janúar.

Hundahreinsun fer fram fimmtudaginn 14. janúar.

Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er eigendum skylt að örmerkja dýrin, samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi, að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt. Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið. Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar, eða senda hana á steinthor@dalvikurbyggd.is

Deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar